Undirritun samnings við Sveitarfélagið Árborg 23. desember 2022 Nýverið var undirritaður samningur um hýsingu og rekstur á tölvukerfum Sveitarfélagsins Árborgar við TRS.Samningur þessi er gerður að undangengnum útboði sem Ríkiskaup annaðist og var TRS með lægsta tilboðið af fjórum aðilum. Frá TRS Karl Ó. Kristbjarnarson og Gunnar B Þorsteinsson , frá Árborg Fjóla Kristinsdóttir og Sigríður M. Björgvinsdóttir.